Skólaráð

Skólinn

Samráðsvettvangur um skólahald

Skólaráð grunnskóla er samstarfsvettvangur starfsfólks skóla, nemenda, foreldra og grenndarsamfélags. Ráðið er kosið til tveggja ára í senn.

Skólastjóri boðar til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári og sendir út fundaáætlun skólaársins. Hann boðar til funda, sendir drög að umræðuefnum og stýrir fundum. Aðstoðarskólastjóri ritar fundargerð og sér til þess að þær birtist á vef skólans.

Helstu verkefni skólaráðs

  • Umfjallanir um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið.
  • Umsagnir um áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skólans áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin.
  • Að fylgjast með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.

Skólaráð Lækjarskóli 2022–2024

Nafn Hlutverk Netfang
Dögg Gunnarsdóttir Skólastjóri [email protected]
Hulda Ólafsdóttir Fulltrúi kennara [email protected]
Hildur Kristjánsdóttir Fulltrúi kennara [email protected]
Sólborg H. Þórðardóttir Fulltrúi starfsfólks [email protected]
Brynja Dís Guðmundsdóttir Fulltrúi foreldra [email protected]
Katrín Anna Húbertsdóttir Fulltrúi nemenda [email protected]
Jón Ingi Ingason Fulltrúi nemenda [email protected]
Geir Bjarnason Fulltrúi grenndarsamfélags [email protected]