Hagnýtar upplýsingar

Foreldrar

Hagnýtar upplýsingar

Nemendur 1.– 7. bekkja fara út í öllum frímínútum, en nemendur elstu deildar mega vera innandyra.

Skólaliðar og stuðningsfulltrúar gæta öryggis nemenda í frímínútum. Gæslunni er skipt upp í svæði þannig að gæslan verði markvissari. Boltavöllum er skipt á milli árganga eftir vikudögum. Starfsfólk á vakt fylgist vel með að skipulagið sé virt og gangi átakalaust fyrir sig. Skólaliðar sem eru inni aðstoða nemendur eins og best hentar hvaða aldri. Þeir taka við nemendum af leikvelli sem hafa meitt sig, sinna þeim og hleypa þeim inn sem þurfa að fara á snyrtingu.

 Ef veður er slæmt hafa kennarar samráð við skólastjórnendur um það hvort nemendur verði inni.

Frímínútur eru einu sinni fyrir hádegi hjá 1.–4. bekk kl. 9:30–9:50

Hádegishlé:

  • 1.–4. bekkur kl. 11:10–12:00
  • 5. bekkur kl. 12:40–13:20
  • 6. bekkur: breytilegur tími milli daga frá kl. 12:00–13:20
  • 7. bekkur kl. 12:40–13:20
  • 8.–10. bekkur kl. 12:00–12:40 

Ef nemendur yngri deilda þurfa af einhverjum ástæðum að vera inni í frímínútum þurfa þeir að hafa með sér beiðni að heiman til umsjónarkennara, þar sem ástæða óskar um inniveru er tilgreind. Miðað er við að nemandi sé ekki inni í meira en einn dag eftir veikindi.

Hjól, hlaupahjól, línuskautar og hjólabrettir eru ekki leyfð á skólalóð í frímínútum. Sjá skólareglur.

Heimanám miðast við vinnu á virkum dögum og vikuáætlun sem finna má í Mentor. Heimanámsverkefni getur verið undirbúningur fyrir næstu kennslustund, að ljúka verkefni sem ekki tókst að ljúka í skóla, samvinnuverkefni nemenda eða önnur verkefni sem kennari setur fyrir. Nemendur fá endurgjöf eða einkunnir fyrir heimanámið.

Nemendur bera ábyrgð á sínu heimanámi og eiga að skila heimanámsverkefnum vel unnum og á réttum tíma.

Markmið og tilgangur með heimanámi

  • Þjálfa og efla færni nemenda.
  • Hjálpa nemendum að skipuleggja sig og skapa aðhald.
  • Efla ábyrgð nemanda á námi sínu.
  • Auka meðvitund foreldra um nám barna sinna.

Hlutverk foreldra

  • Gæta þess að viðeigandi námsgögn séu tekin heim til að hægt sé að ljúka heimanáminu.
  • Vera jákvæð og skapa barninu góðar aðstæður fyrir heimavinnu.
  • Sýna barninu stuðning og hvatningu.
  • Aðstoða barnið sitt við að skipuleggja heimanámið.
  • Fylgjast með heimanámi og sjá hvar er þörf á aðstoð og hjálpa mátulega mikið.
  • Kenna börnunum að taka ábyrgð á heimanámi sínu smám saman.

Lækjarskóli notar náms- og upplýsingakerfið Mentor þar sem nemendur geta séð stundatöfluna sína, fylgst með ástundun og námsframvindu. Foreldrar og nemendur hafa aðgang að kerfinu með kennitölu og lykilorði. Foreldrar hafa sama aðgang og nemendur auk þess að geta fylgst með skráningum í dagbók nemandans.

Foreldrar geta haft samband með tölvupósti við foreldra barna í bekk barnsins síns og kennara skólans í gegnum Mentor, tilkynnt veikindi og leyfi sem eru 2 dagar eða styttri, bókað viðtöl við kennara og fleira.

Reynt er að taka vel á móti nýjum nemendum og veita þeim og aðstandendum þeirra góða kynningu á skólastarfi og áherslum Lækjarskóla.

Foreldrar skrá barn sitt í skólann á Mínum síðum á vef Hafnarfjarðar. Ef nemandi er að koma úr öðru sveitarfélagi, eða erlendis frá, þarf að skrá barnið á skrifstofu skólans á þar til gerðum eyðublöðum.

Nemendur í 1. bekk

Verðandi nemendur koma í 2 heimsóknir yfir veturinn (nóvember og apríl). Foreldrar fá greinargóða kynningu að vori en þá fer fram fyrri hluti foreldrafærninámskeiðs. Seinni hlutinn er haldinn í september en þá er kynning á skólastarfinu þar sem kennarar, deildarstjóri yngsta stigs, hjúkrunarfræðingur og fleiri koma að máli.

Nýir nemendur á skólaári

Áður en nemandinn byrjar í skólanum boðar umsjónarkennarinn nemanda og foreldra hans á kynningarfund og sýnir þeim um skólann.

Nemendur með sérþarfir

Ef nemandinn er að byrja í 1. bekk hefst aðgerðaráætlun vorið áður þar sem deildarstjóri yngsta stigs og deildarstjóri stoðþjónustu fara á skilafund frá leikskóla. Áður en skóli hefst er fundað með foreldrum eða forsjáraðilum nemandans og farið er yfir stöðu hans, eins og styrkleika, veikleika og félagslega stöðu, ásamt væntingum foreldra. Þessar upplýsingar eru mikilvægar til að geta mætt þörfum nemandans frá fyrsta degi. Er meðal annars hugað að aðgengi, hjálpartækjum, ráðgjöf og fræðslu fyrir starfsfólk ef þörf krefur. Í samvinnu við foreldra er ákveðið hvaða aðrir sérfræðingar, sem komið hafa að nemandanum, eru boðaðir á fundinn. Myndað er teymi sem fundar síðan reglulega yfir veturinn.

Ef nemandi er að koma úr öðrum grunnskóla er haldinn sams konar fundur með starfsfólki fyrrum skóla og foreldrum. Foreldrar hitta fagfólkið og starfsfólk sem koma að nemandanum og fá upplýsingar um þá sérþjónustu sem þegar hefur verið skipulögð.

Nemendur með íslensku sem annað tungumál

Foreldrar ásamt nemanda eru boðaðir í viðtal í skólann áður en skólinn hefst á haustin til að hitta umsjónarkennara og fá allar helstu upplýsingar um skólann. Túlkur er hafður með í viðtalinu. Á fundinum fá foreldrar aðstoð við að fylla út innritunargögn sem innihalda nauðsynlegar upplýsingar um nemandann. Óskað er eftir afhendingu gagna (einkunnir, bólusetningarvottorð, greiningargögn og fleira) ef þau eru til staðar. Foreldrum eru veittar mikilvægar upplýsingar um skólann og spurningum þeirra svarað. Í lok fundar er foreldrum og nemanda sýndur skólinn og kennslusvæðin.

Ef nemendur eru með ofnæmi fyrir einhverjum matvælum er mikilvægt að upplýsa skólann og þau sem sjá um matinn um það.

Morgunmatur

Öllum grunnskólabörnum í Hafnarfirði er boðið upp á hafragraut 20 mínútum fyrir fyrstu kennslustund. Grauturinn er borinn fram í matsalnum frá 07:45–08:10.

Hádegismatur

Hægt er að skrá barn í heitan mat í hádeginu sem Skólamatur sér um. Matseðill fyrir vikuna birtist á vef skólans og Skólamatar.

Í byrjun skólaárs þarf að skrá barn í mataráskrift á vefsíðu Skólamatar. Það er hægt að velja fasta áskrift 5 daga vikunnar, sérstaka daga eða kaupa stakar máltíðir. Áskriftin framlengist sjálfkrafa um 1 mánuð, nema ef áskrift er sagt upp eða breytt.

Lögð er áhersla á næringu barna, umhverfissjónarmið og matarsóun. Allir matseðlar eru næringarútreiknaðir og farið eftir ráðleggingum embættis Landlæknis.

Nemendur sem kjósa að vera ekki í mataráskrift geta komið með nesti að heiman og borðað í matsalnum þar sem er aðgangur að örbylgjuofni og samlokugrillum.

Hressing

Á morgnana er hressing og hægt er að kaupa áskrift af ávöxtum- og grænmeti hjá Skólamat.

Systkinaafsláttur af mataráskrift

Ef þú átt 2 eða fleiri börn í grunnskóla færðu 25% afslátt af mataráskrift fyrir annað systkinið og 100% afslátt frá og með því þriðja. Systkini verða að vera með sama lögheimili og fjölskyldunúmer í Þjóðskrá.

Ef þú uppfyllir þessar reglur þarf ekki að sækja um sérstaklega, annars þarf að sækja um á Mínum síðum Hafnarfjarðarbæjar. Sækja þarf um fyrir 20. mánaðar til að fá afslátt fyrir mánuðinn eftir. Afslátturinn er ekki afturvirkur.

Námsmat í Lækjarskóla byggir á símati, prófum, könnunum og öðrum verkefnum og skal vera upplýsandi, leiðbeinandi og hvetjandi.

Markmiðið er að vera með stöðugt alhliða námsmat (símat). Í því felst reglulegt eftirlit með vinnu nemenda þar sem nemendur og forsjáraðilar eru upplýstir jafnóðum um stöðu nemenda. 

Tilgangur námsmats er að kennarar meti nám og framfarir nemenda reglulega og að forsjáraðilar, kennarar og nemendur geti glöggvað sig með árangursríkum hætti á því hvernig miðar í náminu. Í þessu felst að ekki eru prófalotur, heldur fer námsmat fram jafnt og þétt yfir skólaárið með fjölbreyttum hætti.

Allt námsmat fer fram í gegnum Mentor og þannig gefst foreldrum kostur á að fylgjast stöðugt með framvindu námsins hjá sínu barni. Allir nemendur fá einkunnir og umsagnir í lok anna.

1.–4. bekkur

Símat og lokamat eru gefin eftir kvarðanum:

  • Framúrskarandi
  • Hæfni náð
  • Á góðri leið
  • Þarfnast þjálfunar
  • Hæfni ekki náð

Ef nemandi fær „hæfni ekki náð” er skráð umsögn sem skýrir af hverju nemandi náði ekki tilteknu hæfniviðmiði.

5.–7. bekkur

Námsmat er gefið eftir kvarðanum:

  • Framúrskarandi
  • Hæfni náð
  • Á góðri leið
  • Þarfnast þjálfunar
  • Hæfni ekki náð

Nemendur fá svo bókstaf sem lokaeinkunn A, B+, B, C+, C og D. Ef nemandi fær „hæfni ekki náð” er skráð umsögn sem skýrir af hverju nemandi náði ekki tilteknu hæfniviðmiði.

8.–10. bekkur

Námsmat og lokaeinkunn eru gefin eftir kvarðanum A, B+, B, C+, C og D. Ef nemandi fær D er skráð umsögn með því hæfniviðmiði sem skýrir af hverju. Hægt er að meta sama hæfniviðmið oftar en einu sinni en það nýjasta birtist alltaf. Kennari metur síðan hver lokaeinkunnin er.

Nemendur í unglingadeild Lækjarskóla geta fengið læstan geymsluskáp til afnota. Skáparnir eru fyrst og fremst ætlaðir til þess að geyma skólabækur og námsgögn. Nemendur eiga ekki að geyma verðmæti eins og farsíma og peninga í skápunum. Skólinn ábyrgist ekki verðmæti sem kunna að tapast í skólanum. Skáparnir eiga alltaf að vera lokaðir og læstir þegar eigandi er ekki nærri.

Skáparnir eru númeraðir og fá nemendur lykil að tilteknum skáp. Nemendur mega ekki undir neinum kringumstæðum lána lykil sinn. Nemendum ber að skila lyklunum að vori áður en skóla lýkur. Nemendur greiða 1.000 krónur í leigu og fá þá lykil afhentan. Ef skáp og lykli er skilað að vori í sama ásigkomulagi og að hausti fær nemandinn endurgreiddar 1.000 krónur. 

Skólinn áskilur sér rétt til leitar ef nauðsyn krefur, til dæmis ef grunur leikur á um að ólögmætir hlutir leynist í skápi eða eitthvað sem geti valdið því að öryggi nemenda sé í húfi.

Oft safnast töluvert af óskilafatnaði á göngum skólans. Ef fötin eru merkt komast þau strax til skila og því mikilvægt að merkja föt barnanna. Skólaliðar leggja sig fram um að koma óskilafatnaði og töskum í réttar hendur.

Óskilamunir eru teknir fram og eru sýnilegir á viðtalsdögum þegar búist er við foreldrum í skólann. Foreldrar geta líka komið við í skólanum hvenær sem er ef þeir sakna einhvers.

Fatnaður sem er ósóttur eftir lok hvers skólaárs er gefinn til Rauða krossins.

Nemendur í grunnskólum í Hafnarfirði fá ókeypis stílabækur, skriffæri, möppur og önnur ritföng sem þeir þurfa á að halda í daglegu skólastarfi. Námsbækur eru einnig ókeypis eins og alltaf hefur verið. Ætlast er til að ritföng verði eftir í skólanum og að nemendur geti unnið heimanám með ritföngum sem eru til á heimilinu.

Foreldrar þurfa aðeins að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, sund- og íþróttafatnaði og skriffærum til notkunar heima.

Markmiðið er að draga úr kostnaði foreldra við nám barna sinna, tryggja jafnræði, nýta fjármuni betur og draga úr sóun.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendir út tilkynningar um veður þegar á þarf að halda, í samráði við lögreglu og skólayfirvöld.

Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Í Lækjarskóla fá allir nemendur í 5.— 10. bekk spjaldtölvu til afnota.

Nemendur í 5.–7. bekk geyma spjaldtölvurnar að mestu í skólanum. Spjaldtölvurnar eru geymdar í sérstökum skáp þar sem þær eru hlaðnar yfir nótt. Kennari getur þó beðið nemendur um að taka spjaldtölvu með heim ef þörf er á til að vinna ákveðin verkefni.
 
Nemendur í 8.–10. bekk fara með spjaldtölvurnar heim í lok skóladags og koma með þær hlaðnar næsta skóladag. Mikilvægt er að tölvan sé alltaf fullhlaðin í byrjun dags þar sem hún er mikið notuð í kennslu og hætta á að tölvan eða hleðslutæki skemmist við að hlaða á göngum og í skólastofum. Ef það gerist þurfa foreldrar að útvega skólanum nýtt tæki.

Við lok hvers skólaárs skila nemendur spjaldtölvunni ásamt hleðslutæki til skólans til geymslu yfir sumarið.

Í boði er fjölbreytt úrval valmöguleika fyrir nemendur í 8.–10. bekk. Sumar valgreinar eru sameiginlegar fyrir 8. – 10. bekk, aðrar fyrir 9. og 10. bekk og nokkrar valgreinar eru einungis fyrir 10. bekk. Valgreinar eru kynntar á vorin og nemendur velja fög áður en skóla lýkur fyrir sumarið.

Valgreinar eru kenndar hálft ár í senn, 1 til 2 kennslustundir í einu nema annað sé tekið fram í áfangalýsingu. Valgreinar eru ekki aukagreinar heldur eru þær jafn mikilvægar og kjarnagreinarnar og kröfur um ástundun og árangur þær sömu.

Val er bindandi fyrir komandi skólaár og því er mikilvægt að vanda valið. Ef ekki er nóg þátttaka í einstaka valgreinum geta þær fallið niður.

Metið val

Nemendur geta fengið metið nám utan skólans sem 2 kennslustundir á viku í staðinn fyrir valgrein. Ef nemandi stundar tvær íþróttagreinar eða nám utan skóla má fá 4 kennslustundir metnar. 

Dæmi:

  • Tónlistarskóli.
  • Myndlistarskóli.
  • Skákskóli.
  • Reiðskóli.
  • Tungumálaskóli.
  • Dansskóli.
  • Skipulagt íþróttastarf.

Til að staðfesta þátttöku í utanskólavali þarf nemandi að skila sérstöku eyðublaði sem skólinn leggur til með undirskrift foreldris. Nemendur og foreldrar bera fulla ábyrgð á þessum skilum til að starfið fáist metið.

Veikindi

Foreldrar þurfa að tilkynna veikindi gegnum Mentor eða á skrifstofu skólans í síma 555 0585 fyrir 8:30. Ef það er ekki gert er litið svo á að um óheimila fjarvist sé að ræða. Standi veikindi yfir í nokkra daga á að tilkynna þau fyrir hvern dag.

Sé um veikindi að ræða til lengri tíma getur nemandi þurft sjúkrakennslu. Sótt er um hana á Mínum síðum á vef Hafnarfjarðar.

Leyfi

Leyfi í 2 daga eða minna er hægt að tilkynna í Mentor, með tölvupósti eða hringja í skólann í síma 555 0585. 

Leyfi fyrir meira en 2 daga þarf að tilkynna á Mentor eða á vefsíðu skólans. Skólinn gefur ekki út sérstakt heimanám eða sérverkefni til nemenda í leyfum né gerir tilfærslur á námi. Allt nám er á ábyrgð forsjáraðila meðan á leyfi stendur. 

 

Stafrænar öryggismyndavélar eru utanhúss í skólanum og við suma innganga. Markmiðið er að hafa rafræna vöktun á skólabyggingunni og skólalóðinni í öryggisskyni og til varnar því að eigur séu skemmdar eða þeim stolið.

Upptökur eru einungis skoðaðar ef upp koma atvik varðandi eignavörslu eða öryggi einstaklinga, eins og þjófnaður, skemmdarverk eða slys. Heimild til skoðunar er aðgangsstýrð en myndefni er vistað að hámarki í 90 daga og eytt að þeim tíma loknum.

Vöktunin er útfærð í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Merkingar með viðvörunum um rafræna vöktun eru uppsettar á vöktuðu svæðunum.