Foreldrafélag

Foreldrar

Hlutverk foreldrafélagsins er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Allir forsjáraðilar nemenda í skólanum teljast félagar í foreldrafélaginu.

Stjórn Foreldrafélags Lækjarskóla

Stjórn foreldrafélagsins er skipuð einum fulltrúa úr hverjum árgangi, auk fulltrúa úr sérdeild, alls 11 manns. Stjórnin er kosin á aðalfundi félagsins sem er haldinn byrjun skólaársins. Hægt er að hafa samband við foreldrafélagið með tölvupósti á [email protected].

Hlutverk foreldrafélagsins er meðal annars:

  • Að styðja við skólastarfið.
  • Stuðla að velferð nemenda skólans.
  • Efla tengsl heimilis og skóla.
  • Hvetja til virkrar þátttöku foreldra í skólastarfi.
  • Hagsmunagæsla, aðhald og eftirlit með skólastarfinu.

Stjórn 2023–2024

Bekkur Nafn Hlutverk
- Brynja Dís Guðmundsdóttir Formaður
- Helga Guðrún Ásgeirsdóttir Gjaldkeri og fulltrúi í Foreldraráði

Lög

1. grein. Félagið heitir Foreldrafélag Lækjarskóla, heimili þess er Sólvangsvegur 4, Hafnarfirði.

2. grein. Félagar eru allir foreldrar og forsjáraðila nemenda í skólanum.

3. grein. Markmið félagsins er að vinna að heill og hamingju nemenda skólans og skólann í hvívetna, efla samvinnu heimila og skóla og koma á framfæri sjónarmiðum varðandi skóla, menntun og uppeldismál barna.

Markmiði sínu hyggst félagið meðal annars ná með því að:

  • Starfa samkvæmt þeim ákvæðum laga og reglugerða sem Alþingi og Menntamálaráðuneyti setur um grunnskóla.
  • Skipuleggja og þróa leiðir til að efla samstarf heimila og skóla og styðja eftir megni félags- og tómstundastarf nemenda.
  • Veita skólanum aðstoð vegna ákveðinna verkefna og starfa í skólanum.
  • Koma á umræðufundum um skóla og uppeldismál almennt í samráði við skólann.
  • Fylgjast með skólastarfinu og koma fram með óskir um breytingar á starfi skólans.
  • Fjalla um félagslega aðstöðu barna í skólahverfinu.
  • Vera samstarfsvettvangur foreldra.

Félagið eða stjórn þess skal ekki hafa afskipti af vandamálum sem upp kunna að koma milli einstakra foreldra, eða forsjáraðila, og starfsfólks skólans.

4. grein. Stjórn félagsins er kosin á aðalfundi og skal skipuð foreldrum eða forsjáraðilum, einum fyrir hvern árgang nemenda og fulltrúum sérdeilda skólans. Ef ekki næst að manna stjórn á aðalfundi skal stjórn leitast við að fá forsjáraðila inn í stjórnina þar til hún er fullmönnuð. Stjórnin kýs formann úr sínum hópi, skiptir með sér verkum og setur sér starfsreglur. Stjórn félagsins skal halda að minnsta kosti 4 fundi árlega. Öll stjórnin skal kosin til eins árs í senn og skal hún koma sér saman um að að minnsta kosti 5 sitji áfram í stjórn næsta starfsár, þannig að ekki verði fleiri en 6 nýir fulltrúar kosnir árlega. Rétt til setu á stjórnarfundum hafa skólastjóri, aðstoðarskólastjóri og árgangastjórar og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt.

5. grein. Fulltrúi hvers árgangs í stjórn er ábyrgur fyrir því að 2 bekkjarfulltrúar séu skipaðir fyrir hvern bekk í árganginum. Bekkjarfulltrúar sjá um starf í þágu síns bekkjar skv. starfsreglum stjórnar. Stjórn foreldrafélagsins skal boða alla bekkjarfulltrúa til sameiginlegs fundar minnst einu sinni á vetri.

6. grein. Aðalfund skal halda fyrir lok maí ár hvert og telst fundurinn löglegur ef til hans er boðað með minnst 7 daga fyrirvara. Á aðalfundi flytur stjórnin skýrslu um störf félagsins á liðnu starfsári. Aðalfundur ákveður upphæð árgjalds. Árgjald skal innheimta með rafrænum greiðsluseðli að hausti. Fyrir skólaárið 2023–2024 verður það 2.500 krónur. Bókhaldsár félagsins er frá 1. maí til 30. apríl ár hvert.

7. grein. Á aðalfundi félagsins skal kjósa 2 fulltrúa í skólaráð skólans eins og kveðið er á um í 9. gr. laga nr. 91/2008. Um kosningu í skólaráð fer eftir eftirfarandi starfsreglum:

  • Stjórn foreldrafélagsins í samráði við skólastjóra auglýsir eftir tilnefningum úr hópi foreldra í skólaráð. Tryggja skal að öllum foreldrum berist slík auglýsing. Auglýsinguna skal senda með Mentor-pósti á alla foreldra og birta á vefsíðu skólans og foreldrafélagsins. Í auglýsingunni er hlutverk skólaráðs kynnt og að fulltrúar séu kosnir til 2 ára í senn. Tilnefningum skal skilað til formanns foreldrafélagsins eða senda í tölvupósti á netfang foreldrafélagsins.
  • Annar fulltrúi foreldra í skólaráði skal vera úr röðum stjórnarmanna foreldrafélagsins.
  • Ef enginn gefur kost á sér þá leitar stjórn foreldrafélagsins eftir foreldrum til að gefa kost á sér.
  • Auglýsa skal eftir framboði foreldra í skólaráð í síðasta lagi viku fyrir aðalfund foreldrafélagsins.
  • Allir foreldrar barna í Lækjarskóla eru kjörgengir nema þeir séu kennarar eða starfsfólk skólans eða sitji sem kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd Hafnarfjarðar.
  • Kosið er í skólaráð á aðalfundi foreldrafélagsins.
  • Þegar kosið er í fyrsta sinn í skólaráðið er annar fulltrúi foreldra kosinn til eins árs og hinn til tveggja ára. Varamenn skal kjósa í samræmi við það. Með þessu móti er komið í veg fyrir að báðir fulltrúar foreldra fari úr skólaráðinu á sama tíma.
  • Að öllu jöfnu skal miða við að fulltrúar foreldra sitji ekki lengur en fjögur ár samfellt í skólaráði.

8. grein. Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og ræður meirihluti atkvæða fundarmanna. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórninni 5 dögum fyrir aðalfund.

9. grein. Ákvörðun um slit félagsins verður tekin á aðalfundi, með auknum meirihluta og renna eignir þess til Lækjarskóla.

10. grein. Lög þessi öðlast þegar gildi.